Karlmenn og Krabbamein

Ég eins og hundruðir aðrir hafa nú skráð okkur til að styðja við bakið á Krabbameinsfélagi Íslands. Ég vona að sem flestir geta séð sér fært að styðja vel við bakið á þessu verkefni en tilgangurinn er góður.

Ég er með áheitasíðu hjá þeim hér þar sem ég mun bæta við myndum reglulega til að sýna afraksturinn.

Hægt er aðsenda stutt sms skilaboð með textanum 1370 í númerið 9055555 til að heita 499kr í þetta góða málefni. Ég vona að sem flestir taki áskorunninni og styðji Krabbameinsfélagið. 

 Einnig er hægt að heita hærri upphæð ef þú ferð á síðuna hérna.

 

 

 


Gjaldþrota hugmyndafræði

Ohf væðing RÚV og stefnuleysi þessarar ríkistjórnar í menningarmálum mun líkast til ganga frá kvikmyndagerð á Íslandi næsta áratuginn. Ef haldið verður í núverandi stefnu ríkistjórnar VG og Samfylkingarinnar mun þessi atvinnugrein verða fyrir það mikilli blóðtöku að það er ekki víst hvenær hún mun jafna sig. Ekki má heldur gleyma að Kvikmyndamiðstöð Íslands varð fyrir 35% lækkun í framlögum frá Ríkinu sem er sexfalt meiri í kvikmyndagerð heldur en til annara menningargreina. Þetta eru viðbrögð ráðherra ríkistjórnarinnar nú þegar RÚV er bara skugginn af sjálfum sér.
 
Þessi staðreynd auk þess að nú þegar ekki verður keypt inn neitt íslenskt efni hjá RÚV þá er verið að gefa íslenskri kvikmyndagerð náðarhöggið.  Hvernig réttlætir þessi ríkistjórn þessar aðgerðir sem hafa slík margfeldisáhrif inn í heila iðngrein. Þessar aðgerðir hafa einnig þau árhrif að þær loka einnig á fjármögnun erlendis frá því skilyrði hennar er að um stuðning sé að ræða innanlands.

Staðan ætti í raun að vera sú að nú ættu menn að auka framlög, því staðreyndin er sú að þessir peningar skila sér tilbaka margfalt inn í hagkerfið en reiknað er út að hver króna sem notuð er í kvikmyndagerð skilar fjórum krónum í ríkiskassann. Þetta hafa Írar áttað sig á og þó svo að álíka kreppa er þar í gangi.  Þar var ekkert skorið þar niður, sömu sögu er að segja frá Noregi en þar var aukið framlag til kvikmyndagerðar um 8%. En nærsýni manna hér á landi er slík að menn sjá þetta ekki.


Ég er brjálaður!

  imag0011_931863.jpg

Þetta er yfirskrift ungmenna í Hafnarfirði í dag en mikil mótmæli urðu fyrir framan ráðhús Hafnarfjarðar í dag vegna fyrirhugaðs niðurskurðar og uppsögn á starfsmönnum tómstunstundahúsa. Ég get ekki annað en verið stoltur að sjá ungt fólk í Hafnarfirði vera taka afstöðu. Einnig sýnist mér að mótmælin gangi vel fyrir sig og ungmennin standi sig vel að halda þeim friðsamlegum. 

Ef ungmenni landisins fara að taka svona sterka afstöðu í framtíðinni í málefnum sem þeim snerta, þá er ég mjög bjartsýnn á framtíðina. Enda er staðan í dag mikið að því að kenna að almenningur var plataður í falska öryggiskennd með stjórnmál landsins. En fyrir hrun var algengt að menn vildu hreinlega ekki ræða stöðu landins eða stjórnmál. Mikil breyting hefur orðið þar á og ég tel það vera mjög til bóta. 

Hér eru svo nokkrar myndir af ungmennunum að mótmæla í Hafnarfirði.

 

imag0004_931860.jpg

imag0016.jpg

imag0015_931866.jpg

imag0007.jpg


Nýja Ísland

Ég verða að taka undir orð Egils Helgasonar og velta fyrir mér hvað er í gangi með afskriftir þessara fyrirtækja. Persónulega tel ég að þetta sé enn eitt átakið í því að að breiða dulu yfir verknað sem er löglegur en siðlaus. Afskriftir á tugum milljarða sem mun lenda á ríkinu en samt sem áður er ekki tekið yfir eignarhald á þessum fyrirtækjum.

Ef menn reka fyrirtæki það glannalega að það er komið í þá stöðu að skulda tugi milljarða óháð hvernig það kom upp, þá á að taka það traustataki. En ekki veita mönnum skuldaniðurfellingu í stórum stíl og leyfa þeim að halda áfram rekstri óhikað á eftir. 

Hvað þá þegar þessir sömu menn áttu stóra hluti í gömlu bönkunum og keyrðu þá á autobahn í átt að hruninu. 

En svo virðist sem ekkert hafi breyst, sömu menn eru enn í stjórnunarstöðum í bönkunum að veita sömu vinum og frændum greiða.

Eftirlit með bönkunum eða skilanefndum þeirra er greinilega enn ónýtt eins og það var fyrir hrun.


mbl.is 1998: Eigendur njóta trausts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurfelldar skuldir

Ákaflega merkilegt er að fylgjast með Forsætisráðherra landsins ráðast á stærstu útflutningsgrein landsins á Eyjunni og leggja til að hún sé að losna undann skattlagningu almennt. Ég held að Forsætisráðherra okkar ætti að beina spjótum sínum að þeim sem nú eru að fá stórfelldar niðurfellingar á skuldum sem lenda beint á herðum okkar landsmanna.Í stað þess að ráðast á þær atvinnugreinar sem hafa haldið áfram að búa til útflutningstekjur óháð kreppunni. 

Ég hef ekki heyrt um eitt dæmi þess að ISAL eða ALCOA hafi verið að fá neinar skulldir niðurfelldar hér á landi eftir hrunið sem varð. Er það ekki merki um að þessi atvinnugrein sé sjálfbær og er ekki að velta gríðarlegum skuldum yfir á þjóðina?

En einmitt virðist það vera lenskan þessa dagana að fá skuldaniðurfellingar í stórum stíl í bönkunum og þar sem bankarnir eru nú í eigu ríkisins þá er þjóðin að taka á sig þetta tap. 

Á eftir stóriðjunni í útflutningi kemur sjávarútvegurinn, en þar er umhverfið allt annað. Þar sjáum við stórkostlega skuldsett fyrirtæki sem vinna fiskinn og skuldirnar eru það miklar að þær skaða stöðu landins. En þar er líka vissri ævintýramennsku leyft að grassera í samstarfi við útrásarvíkingana. Ekki tóku allir þátt í því sukki en nægilega margir voru það til að öll greinin situr nú í sárum eftir hrunið. 

Ég er fullshugar á bakvið þá hugsjón stólpum atvinnulífsins verði fjölgað úr því sem er í dag. Hinsvegar skil ég ekki þessa þráhyggju Forsætisráðherrans, Samfylkingarinnar og VG  að ráðast á núverandi atvinnuvegi.

Væri ekki ráð á að einbeita sér að styðja þær atvinnugreinar sem nú starfa í landinu samhliða því að byggja upp nýja atvinnuvegi?


Ómerk yfirlýsing

Ég mun ekki leggja neitt hald á svona yfirlýsingar þangað til að við sjáum verkin tala. Stuðningur við atvinnulífið og lækkun vaxta var í fyrsta stöðugleikasáttmálanum. Það kom aldrei til framkvæmda jafnvel þó svo að tækifærin og tíminn til þeirra verka er búinn að vera nægur.

Þegar það verður að veruleika þá skal ég fara að trúa því sem kemur þeim hjónakornunum Jóhönnu og Steingrími.


mbl.is Áform um orkuskatt endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getgátur um Íslandslán

Hvernig væri það að hætt væri að vera með allar þessar getgátur um framtíðina. Væri ekki betra væri að fá þetta á hreint. Jóhanna ætti að senda formlega beiðni til Noregs um lán óháð AGS. Þá væri þetta afgreitt fyrir fullt með formlegu svari. Það er óafsakanlegt að vera með þessa vitleysu, bréfasendingar í tölvupósti eru ekki formleg samskipti á milli ríkja, það veit fimm ára barn. 

Við eigum skilið að verkin tali en ekki að þessum getgátum er hent í andlitið á þjóðinni endalaust til að ýta umræðunni frá því hversu ráðalaus þessi ríkistjórn er.


mbl.is Íslandslán rædd á Norðurlandaráðsþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er framtíðarsýnin?

Það virðist ekki vera nein heildstæð framtíðarsýn til í því skrímsli sem ríkistjórnin er orðin í dag. Ein hendi slær á aðra og menn bítast á um smámuni sem koma almenningi ekkert við, einnig eru þau hryðjuverk sem unnin eru daglega á atvinnulífinu ótrúleg.

Þessi ríkistjórn lét gera fyrir sig skýrslu unna af sérfræðingum hvernig skyldi haga sér í uppbyggingu atvinnulífsins og niðurstaða hennar var ekki flókinn. Tvennt þarf að gera til að byggja upp atvinnulífið til að styrkja það til framtíðar. 

Fyrsta er að styrkja þá atvinnuvegi sem nú í dag skapa tekjur fyrir landið. Þar er nú stóriðjan í fyrsta sæti. Fiskveiðar og vinnsla í öðru sæti. Svo er ferðaiðnaðurinn í þriðja sæti á því sem talið var upp. 

Styrking þessara atvinnuvega er sneggsta leiðin til að auka hagvöxt til styttri tíma.

Það seinna sem kom upp úr þessari skýrslu var að samhliða verður að styrkja öll tækifæri sem fyrir er í nýsköpun til að auka hagvöxt til lengri tíma og auka fjölbreytni í hagkerfi okkar. Ef einungis er farið í eitt af þessu þá tapast tækifæri til styttri eða lengri tíma. 

Því miður virðist þessi ríkistjórn vera að stefna að hvorugu þessara markmiða og eru því að hunsa sína eigin ráðgjafa í þeim málum. 

Orkuskatturinn er dæmi um neikvæðan hvata í uppbyggingu á atvinnulífinu og tel ég að það ætti alvarlega að endurskoða kosti og galla slíkrar skattlagningar. 

Að lokum vill ég kalla eftir stefnu ríkistjórnarinnar í uppbyggingu atvinnulífsins og að nefna Icesave er ekki svar. Það er afsökun til að komast undan að svara þessari spurningu.


mbl.is Í bið vegna orkuskatts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna og Steingrímur

Skammarlegt að fylgjast með ánægju Jóhönnu og Steingríms nú í sjónvarpinu með niðurstöðuna í Icesave málinu. 

Ég get ekki bætt meira við sem stendur hvað mér finnst þetta léleg niðurstaða. En ég er stoltur af mínum að standa í lappirnar og kjósa gegn þessum samningum. Að sitja hjá er léleg afstaða í þessu eina mikilvægasta máli samtímans. 


mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluaðlögun er í raun gjaldþrotameðferð

Þá er komið í ljós að Samfylkingin ætlar að setja það fólk sem hefur verið verst sett út af kreppunni í gjaldþrotameðferð. Hverskonar afgreiðsla er þetta hjá þeim? Eru þetta virkilega sú velferðarbrú sem við eigum að lifa við næstu árin að fólk verði tekið fjárhagslega höndum eins og hér.

Ég myndi skammast mín fyrir að gera annarri manneskju slíkan ógreiða. Við vöruðum við þessu i kosningum að þetta væri ekki lausn og nú sjáum við afraksturinn. Fólk er sett í fjarhagslegt fangelsi vegna kreppunnar. Nú myndi ég vilja heyra í smá þeirri heilagri reiði Steingríms Jóhanns yfir þessu en við vitum öll að sá leikaraskapur er nú kyrfilega læstur niðri í skáp. 

Greiðsluaðlögun og tilskipaður umsjónarmaður er niðurlægjandi lausn sem er ótrulegt að fólk hafi kosið yfir sig. 

Það er á hreinu ef það yrðu tekinn skref í að jafna skuldir heimilanna eins og til er lagt með 20% afskriftum sem dæmi er ekki jafn ömurleg aðför að heimilum landsins og gæti í raun skila einhverjum árangri annað en sést hér.


mbl.is Á vanskilaskrá í greiðsluaðlögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband